Fara í efni

Skráning er hafin á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2022

13. október 2021
Fréttir
Frá Mannamótum markaðsstofa landshlutanna 2019

Markaðsstofur landshlutanna, í samvinnu við flugfélagið Erni og Isavia, setja upp ferðakaupstefnuna Mannamót Markaðsstofa landshlutanna fyrir samstarfsfyrirtæki sín fimmtudaginn 20. janúar 2022 kl. 12:00 – 17:00 í Kórnum í Kópavogi.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu.

Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpar til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamóti gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða upp á, með áherslu á vetrarferðamennsku.

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.

Skráningu lýkur þann 15. desember 2021. Verð 19.000+ vsk.

SKRÁNING SÝNENDA  SKRÁNING GESTA